Flutningur

Flutningur

Í flutningskostnaði er flutningur pöntunar frá framleiðslu heim að dyrum viðskiptavina. Ath. í ákveðnum póstnúmerum miðast verð við afhendingu á næstu afgreiðslustöð Samskipa utan höfuðborgarsvæðisins.

Heimsendingarkostnaður

Heimsendingarkostnaður reiknast út í netverslun okkar þegar búið er að velja allar vörur í körfuna og slá inn póstnúmer, þar sem kostnaðurinn fer eftir stærð og fjölda eininga í hverri pöntun.

Flutningskostnaður reiknast útfrá rúmmetra nýtingu í gám og deilist á hverja einingu í hverri pöntun. Svo hlutfallslega er flutningskostnaður hærri á 1 stk. glugga en á 10 stk. 

Sækja hjá Samskip

Að öllu jafnan er ekki í boði að sækja hjá Samskip. Hins vegar getur komið upp sú staða að ekki er unnt að keyra pöntun heim vegna stærðar á einingum eða aðkomu að afhendingarstað. Þá verður viðskiptavinur að sækja á næstu stöð Samskipa.  
ATH Þó vara er sótt fellur flutningskostnaður ekki niður. Í flutningskostnaði er flutningur pöntunar frá framleiðslu og að dyrum viðskiptavinar innan höfuðborgarsvæðis en á næstu stöð utan höfuðborgarsvæðisins. 

 

Þegar þú sækir pöntunina þína hjá Samskip þá ferðu í vöruafgreiðsluna við hliðina á dyr 35. Sjá kortið hérna fyrir neðan. Þú þarft að hafa meðferðis afhendingarnúmerið sem þú hefur fengið sent í tölvupósti.

Mundu einnig að þú hefur 3 daga til að sækja pöntunina, eftir þann tíma mun aukalega bætast 10.000 kr. í þjónustugjald, ásamt 1.000 kr. geymslugjaldi sem reiknast daglega.

Mikilvægt er að athuga hvort að pöntunin hefur orðið fyrir flutningsskaða við komuna til landsins. Ef svo er þá þarft þú að gera athugasemd skriflega og fá undirskrift frá starfsmanni Samskips.

Ertu tilbúin/n til að panta nýja glugga og/eða hurðir?