Tvöföld hurð, tvöföld útihurð eða tvöföld aðalhurð

Tvöföld hurð gefur húsinu virðulegt og flott útlit og stærri inngang en með venjulegum 95 cm breiðum dyrum, eða allt að 210 cm breidd. Tvöfaldar útihurðir frá okkur eru á mjög samkeppnishæfu verði og við bjóðum reglulega upp á tilboð á útihurðum.

  • Tré
  • Tré/Ál
  • PVC

Pantaðu tvöfalda útihurð strax í dag!

Yfirlitið hér að neðan sýnir úrval okkar af tvöföldum hurðum.
Ef þú vilt reikna verð smellirðu einfaldlega á þá tegund sem þú vilt. Því næst skaltu færa inn mál og upplýsingar.

 

Athugið: Kvistlaust tré er alltaf forvalið. Ef þú vilt annað efni skaltu muna að taka það fram þegar þú ert búinn að velja þér hurð.

Leiðbeiningar um pöntun tvöfaldrar útihurðar

Ertu ekki viss um hvað þarf að hafa í huga áður en tvöföld útihurð er keypt? Haltu þá áfram að lesa til að fá svör við algengum spurningum frá viðskiptavinum þegar þeir panta toppstýrða glugga.

Yfirlit yfir innihald

  1. Hvaða efni á ég að velja?
  2. Hvernig tek ég mál fyrir glugga?
  3. Hvernig lista á ég að velja?
  4. Tvöfalt eða þrefalt gler?
  5. Hvernig gler á ég að velja fyrir baðherbergisgluggann?
  6. Á ég að panta með eða án raufar?
  7. Á að vera neyðaropnun á glugganum mínum?
  8. Á að vera hallaopnun á glugganum mínum?
  9. Á að vera loftræstiventill á glugganum mínum?

„Við aðstoðum þig í öllu ferlinu! Ef þú lendir í vandræðum eða ert í vafa um eitthvað erum alltaf til þjónustu reiðubúin við símann!“


- Hafliði, sölumaður

Hvaða efni á ég að velja?

Þú getur valið á milli þriggja efnistegunda – tré og tré/áls. Veltu eftirfarandi fyrir þér áður en þú ákveður hvernig efni þú vilt:

 

  • Er mikilvægt að viðhald sé í lágmarki?
  • Vil ég halda útliti hússins óbreyttu?

Hvernig tek ég mál fyrir tvöfalda hurð?

  • Fyrst skaltu mæla dyraopið. Það gerir þú með því að mæla frá steini til steins að utanverðu.
  • Mældu fyrst breiddina og því næst hæðina. Þú þarft að mæla á nokkrum stöðum þar sem veggurinn gæti verið skakkur.
  • Þegar þú hefur mælt opið skaltu draga 2,5 cm frá.
  • Þegar þú hefur gert það hefur þú fengið mál rammans. Það er rammamálið sem þú notar þegar þú pantar tvöföldu útihurðina.

Hvernig listar eiga að vera á tvöföldu útihurðinni minni?

Ef listar eiga að vera á hurðinni mælum við með því að velja orkusparandi lista, þar sem þeir eru orkuvænn kostur. Á meðan þverskerandi listar fara í gegnum glerið og skipta því upp í marga fleti eru orkusparandi listar límdir á glerið.

Á ég að velja tvöfalt eða þrefalt gler?

Báðar þessar rúðutegundir uppfylla gildandi byggingareglugerðir og því getur þú valið bæði tvöfalt eða þrefalt gler áhyggjulaus. Við mælum aðeins með þreföldu gleri fyrir stóra glugga eða ef húsið er einangrað samkvæmt orkuflokki A, þar sem annars gæti tekið mörg ár að ná upp í kostnaðinn sem fylgir þreföldu gleri.

Snerill/lyklalás

Ef svo illa fer að eldur kemur upp í húsinu er þessi lausn góð því alltaf er hægt að nota dyrnar sem flóttaleið. Ókosturinn er þó sá að þjófar geta einnig notað dyrnar sem útgang.

Lyklalás/lyklalás

Þetta er gott val sem innbrotsvörn þar sem þú færð sílinderlás beggja megin. Kosturinn við þessa lausn er að þú getur fjarlægt lykilinn að innanverðu þegar þú ert ekki heima. Innbrotsþjófar geta því ekki notað útidyrnar sem útgönguleið.

Hvernig lás á ég að velja?

Þú getur valið á milli tveggja lástegunda – lyklalás/lyklalás og snerill/lyklalás. Hér getur þú lesið um hvað þarf að hafa í huga áður en valið er á milli þessara tveggja lástegunda. Þú getur að sjálfsögðu fengið sama lykil fyrir alla lásana ef þú kaupir margar hurðir. Hægt er að setja bæði nýja og notaða lása og hurðarhúna í hurðirnar ef þeir sem þú átt fyrir eru í of góðu ásigkomulagi til að henda þeim.

Í hvaða stíl á tvöfalda hurðin að vera?

Þú ættir að velja tvöfalda hurð sem passar við húsið sem hún verður

sett upp í.

 

Ef þú býrð aftur á móti í sígildu glæsihýsi er mikilvægt velja hurð, eða bæði hurðir og glugga, með ýmsum smáatriðum á borð við fyllingar, lista og jafnvel tvöföld grunnstykki. Þetta gefur heimilinu ósvikinn, gamaldags blæ.

 

Ef þú býrð aftur á móti í funkis-húsi fer betur á því að velja tvöfalda útihurð með látlausu útliti.

Hvað má tvöfalda hurðin kosta?

Ef það er mikilvægt að viðhald sé í lágmarki þýðir það að plast eða tré/ál er rétti kosturinn fyrir þig. Hins vegar ættirðu að hafa í huga að ekki er öruggt að þessar efnistegundir séu í stíl við húsið þitt. Ef þú býrð til dæmis í gömlu húsi er líklegt að tréhurð henti því betur.
Lestu meira um efnisval hér.

Fulningahurðir

Margar mismunandi tegundir eru til af fulningahurðum en þær samanstanda alltaf af karmi og hurðarramma. Í hurðarrammann getur þú valið um eitt eða fleiri gler og/eða eina eða fleiri fyllingar. Því er hægt að hanna hurðirnar á marga mismunandi máta og þess vegna henta þær í flest hús. Vönduðum fulningahurðum Skanva hefur verið mjög vel tekið.

 

Flekahurð

Ef þú vilt geta séð út getur þú valið hurð með litlum glugga. Glerið er fáanlegt með mismunandi skurði. Flekahurðir eru afar vinsælar, sérstaklega í nýjum húsum. Flekahurðir eru notaðar sem útihurðir í nútímalegum húsum og fulningahurðir eru oftast notaðar í hliðarinnganga.

Hver er opnunarstefna hurðarinnar minnar?

Við bjóðum upp á mikið úrval af tvöföldum útihurðum fyrir þá sem vilja tvær hurðir. Þó er aðeins hægt að nota aðra hurðina staka. Það er aðalhurðin og þess vegna er það sú hurð sem þarf að velja opnunarstefnu fyrir.

 

Þegar opnunarstefnan er ákveðin skaltu standa þeim megin sem hurðin á að opnast. Þannig er opnunarstefna hurðar sem opnast inn ákveðin innan frá en utan frá fyrir hurð sem opnast út.

 

Því næst er ákveðið á hvaða hlið hjarirnar eiga að vera á aðalhurðinni. Ef hurðin opnast til dæmis inn á við og hjarirnar eiga að vera hægra megin mun hurðin opnast inn á við til hægri. Ef hurðin opnast út þá skulu hjarirnar að sama skapi vera hægra megin og þá opnast hurðin út á við til hægri.

 

Athugið: Í verðreiknivél okkar eru teikningar sem sýna mismunandi opnunarmöguleika aðalhurðarinnar.

Í hvaða lit á tvöfalda hurðin að vera?

Hvítur RAL 9010 er staðlaður litur hjá okkur. Öruggasti kosturinn er að hafa tvöföldu útihurðina í sama lit og gluggarnir.

 

Þá færðu látlaust og samræmt yfirbragð sem mun án efa uppfylla væntingar þínar.

 

Þú ættir einnig að taka lit hússins með í reikninginn – hvítir, gráir og svartir litir passa til dæmis við hvít, rauð og gul hús. Þess vegna eru þessir litir vinsælastir. Málningarframleiðandinn okkar, Remmers, býður 10 ára ábyrgð á nýjum hurðum.

Ertu tilbúin(n) að panta tvöfalda útihurð?

Hafa samband

Við hjá Skanva leggjum okkur fram um að veita viðskiptavinum góða þjónustu með persónulegri leiðsögn til að þú finnir fyrir öryggi í gegnum allt ferlið við val á glugga.

 

Nánari upplýsingar eru hér á vefsíðunni okkar. Þér er einnig velkomið að hafa samband og fá tilboð í verkið án nokkurra skuldbindinga.