Toppstýrðir gluggar – skandinavísk hönnun

Þegar toppstýrðir gluggar eru keyptir stendur valið á milli mismunandi efna og lita. Við afhendum gæðaglugga og -hurðir úr tré, tré/áli og PVC/plasti. Toppstýrðum gluggum er stýrt með sleðum og skinnum og vegna þrepalausrar opnunar eru þeir mjög auðveldir og þægilegir í notkun.

  • Tré
  • Tré/Ál
  • PVC
-35%

Toppstýrður gluggi 1 fags

með 1 gleri

33.129 kr.
50.237 kr.
-35%

Toppstýrður gluggi 2 fags

með 1 gleri

65.767 kr.
99.720 kr.
-35%

Toppstýrður gluggi 3 fags

föstum ramma og miðjubita

213.450 kr.
307.996 kr.
-35%

Toppstýrður gluggi 4 faga með föstum ramma

og miðjubita

239.246 kr.
346.609 kr.
-35%

Toppstýrður gluggi 1 fags

með 1x2 gleri

99.633 kr.
144.697 kr.
-35%

Toppstýrður gluggi 2 fags

með 1x2 gleri

170.674 kr.
248.983 kr.
-35%

Toppstýrður gluggi 3 fags

með föstum ramma og miðjubita og 1x2 gleri

230.555 kr.
334.311 kr.
-35%

Toppstýrður gluggi 4 faga með föstum ramma

og miðjubita og 1x2 gleri

255.623 kr.
371.804 kr.
-35%

Toppstýrður gluggi 1 fags

með 2x1 gleri

98.818 kr.
143.444 kr.
-35%

Toppstýrður gluggi 2 fags

með 2x1 gleri

167.835 kr.
244.616 kr.
-35%

Toppstýrður gluggi 3 fags

með föstum ramma og miðjubita og 2x1 gleri

236.968 kr.
344.177 kr.
-35%

Toppstýrður gluggi 4 faga með föstum ramma

og miðjubita og 2x1 gleri

263.528 kr.
383.966 kr.
-35%

Toppstýrður gluggi 1 fags

með 2x2 gleri

107.434 kr.
156.699 kr.
-35%

Toppstýrður gluggi 2 fags

með 2x2 gleri

181.403 kr.
265.489 kr.
-35%

Toppstýrður gluggi 3 fags

með föstum ramma og miðjubita og 2x2 gleri

254.418 kr.
371.023 kr.
-35%

Toppstýrður gluggi 4 faga með föstum ramma

og miðjubita og 2x2 gleri

274.970 kr.
401.568 kr.
-35%

Toppstýrður gluggi 1 fags

með 2x3 gleri

115.635 kr.
169.315 kr.
-35%

Toppstýrður gluggi 2 fags

með 2x3 gleri

192.638 kr.
282.773 kr.
-35%

Toppstýrður gluggi 3 fags

með föstum ramma og miðjubita og 2x3 gleri

272.060 kr.
398.164 kr.
-35%

Toppstýrður gluggi 4 faga með föstum ramma

og miðjubita og 2x3 gleri

294.494 kr.
431.606 kr.
-35%

Toppstýrður gluggi 1 fags

með 3x3 gleri

125.987 kr.
185.242 kr.
-35%

Toppstýrður gluggi 2 fags

með 3x3 gleri

184.549 kr.
272.474 kr.
toppstýrður gluggitoppstýrður gluggi

Pantaðu toppstýrða glugga strax í dag!

Ef þú vilt reikna út verð þá skaltu smella á þá tegund sem þú vilt og færa svo inn mál og upplýsingar. Toppstýrðir gluggar eru einnig til með föstum karmi, til dæmis þannig að neðri hlutinn er toppstýrður og sá efri fastur. Til að þú getir valið rétt þegar þú pantar þá höfum við tekið saman leiðbeiningar sem þú getur kynnt þér hér fyrir neðan.

Leiðbeiningar um pöntun toppstýrðra glugga

Ertu ekki viss um hvað þarf að hafa í huga áður en toppstýrðir gluggar eru keyptir? Lestu eftirfarandi til að fá svör við algengum spurningum viðskiptavina okkar þegar þeir panta toppstýrða glugga.

Yfirlit yfir innihald

  1. Hvaða efni á ég að velja?
  2. Hvernig tek ég mál fyrir glugga?
  3. Hvernig lista á ég að velja?
  4. Tvöfalt eða þrefalt gler?
  5. Hvernig gler á ég að velja fyrir baðherbergisgluggann?
  6. Á ég að panta með eða án raufar?
  7. Á að vera neyðaropnun á glugganum mínum?
  8. Á að vera hallaopnun á glugganum mínum?
  9. Á að vera loftræstiventill á glugganum mínum?

„Við aðstoðum þig í öllu ferlinu! Ef þú lendir í vandræðum eða ert í vafa um eitthvað erum alltaf til þjónustu reiðubúin við símann!“


- Brynjar, sölumaður

efni toppstýrðra gluggaefni toppstýrðra glugga

Hvaða efni á ég að velja?

Þú getur valið um toppstýrða glugga úr tré og tré/áli. Áður en þú tekur ákvörðun um efni þarftu að velta því fyrir þér hvort mikilvægt sé að viðhald sé í lágmarki. Ef svo er þá er tré/ál eða plast góður kostur. Þó er ekki víst að þessi efni henti þér. Kannski viltu til dæmis tréglugga á þitt heimili.

Hvernig tek ég mál fyrir glugga?

Fyrst skaltu mæla breidd og hæð gluggaopsins. Það gerir þú með því að mæla að utanverðu – frá steini til steins. Þú þarft að mæla á nokkrum stöðum þar sem veggurinn gæti verið skakkur.

 

Því næst skaltu draga 2,5 cm frá minnsta máli breiddar og hæðar gluggaopsins.
Þegar þú hefur dregið 2,5 cm frá hefurðu fengið mál gluggakarmsins. Þú notar mál karmsins þegar þú slærð þau inn í verðreiknivél okkar. Við afhendum glugga eftir pöntun í þeim stærðum sem þér hentar.

mæling toppstýrðra gluggamæling toppstýrðra glugga
toppstýrðir gluggar með listumtoppstýrðir gluggar með listum

Hvernig lista á ég að velja?

Við mælum alla jafna með orkusparandi listum þar sem þeir eru orkuvænn kostur. Listarnir eru límdir á glerið sem þýðir að aðeins eitt gler er í glugganum. Ef þú velur þverskerandi lista þá er glerflöturinn úr aðskildum rúðum.

Tvöfalt eða þrefalt gler fyrir gluggana mína?

Báðar þessar rúðutegundir uppfylla gildandi byggingareglugerðir og því getur þú valið bæði tvöfalt eða þrefalt gler áhyggjulaus. Við mælum þó aðeins með þreföldu gleri fyrir stóra glugga eða ef húsið er einangrað samkvæmt orkuflokki A.

toppstýrðir gluggar með tvöföldu og þreföldu gleritoppstýrðir gluggar með tvöföldu og þreföldu gleri

Sandblásið gler

Cotswold-gler

Hvernig gler á ég að velja fyrir baðherbergisgluggann?

Ef baðherbergisgluggi er á stað sem auðvelt er að líta inn um þá viltu e.t.v. fá glugga með ógagnsæu gleri. Ef svo er þá er hægt að velja um sandblásið gler eða Cotswold-gler. Nánari upplýsingar um glertegundir fást í innkaupakörfunni.

Á ég að panta með eða án raufar?

Rauf er fræsing í karminum sem getur auðveldað festingu gluggakistu og/eða lista. Þú getur valið að fá gluggann án raufar, með rauf neðst, með raufum á hliðum og efst eða allan hringinn. Ef þú ert í vafa skaltu spyrja smið ráða.

rauf toppstýrðs gluggarauf toppstýrðs glugga

Toppstýrður gluggi með rauf allan hringinn

toppstýrður gluggar með neyðaropnuntoppstýrður gluggar með neyðaropnun

Á að vera neyðaropnun á glugganum mínum?

Stöðluðu toppstýrðu gluggarnir okkar eru vinsælir og þá er hægt að opna út í 60 gráðu horn. Ef þú vilt geta opnað gluggann meira er hægt að velja neyðaropnun – þá er hægt að opna gluggann í 80 gráður og auðveldara er að komast út um gluggann í bruna. Mál neyðaropnunar: Hæð + breidd = 150 cm. Lágmarksmál er 50 cm.

Á að vera hallaopnun á glugganum mínum?

Ef þú býrð á 2. hæð eða ofar ættirðu að íhuga að hafa toppstýrðu gluggana þína með hallaopnun.

 

Þá er hægt að snúa gluggunum í 180 gráður og þrífa utanverðan gluggann innan úr húsinu.

Á að vera hallaopnun á glugganum mínum?

Ef þú býrð á 2. hæð eða ofar ættirðu að íhuga að hafa toppstýrðu gluggana þína með hallaopnun.

 

Þá er hægt að snúa gluggunum í 180 gráður og þrífa utanverðan gluggann innan úr húsinu.

Vafrinn styður ekki myndbandsmerkið.
toppstýrðir gluggar með loftræstiventlitoppstýrðir gluggar með loftræstiventli

Á að vera loftræstiventill á glugganum mínum?

Ef þú vilt bæta loftið inni á heimilinu er gott að panta toppstýrða glugga með loftræstiventli.

 

Loftræstiventlar einir og sér gera þó ekki mikið gagn. Til að lofta vel út þarf að opna glugga eða dyr.

Hafa samband

Við hjá Skanva leggjum okkur fram um að veita viðskiptavinum góða þjónustu með persónulegri leiðsögn til að þú finnir fyrir öryggi í gegnum allt ferlið við val á glugga.

 

Nánari upplýsingar eru á vefsíðu okkar. Þér er einnig velkomið að hafa samband og fá tilboð í verkið án nokkurra skuldbindinga.

ódýrir toppstýrðir gluggaródýrir toppstýrðir gluggar

Ertu tilbúin(n) til að panta toppstýrða glugga?