Útihurðir með hliðarþiljum, aðalinngangur eða inngangur.

Þegar þú pantar nýjar útihurðir með hliðarþiljum hefur það mikið að segja um útlit hússins. Þess vegna býður Skanva upp á fjölbreytt úrval til að hægt sé að velja á milli.

  • Tré
  • Tré/Ál
  • PVC

Pantaðu útihurð með hliðarþili strax í dag!

Þú getur reiknað verðið á vefsíðu okkar með því að smella á þá tegund sem þú óskar eftir. Því næst skaltu færa inn mál og upplýsingar. Þegar þú hefur fært inn mál og upplýsingar sérðu verðið fyrir útihurðina. Verksmiðjustarfsmenn okkar hafa margra ára reynslu af framleiðslu hurða og glugga. Þar að auki er 10 ára ábyrgð á öllum gluggum og hurðum frá okkur

Leiðbeiningar um pöntun útihurða með hliðarþiljum

Ertu ekki viss um hvað þarf að hafa í huga áður en útihurð með hliðarþili er keypt? Lestu eftirfarandi til að fá svör við algengum spurningum viðskiptavina okkar þegar þeir panta toppstýrða glugga.

Yfirlit yfir innihald

  1. Hvaða efni á ég að velja?
  2. Hvernig tek ég mál fyrir glugga?
  3. Hvernig lista á ég að velja?
  4. Tvöfalt eða þrefalt gler?
  5. Hvernig gler á ég að velja fyrir baðherbergisgluggann?
  6. Á ég að panta með eða án raufar?
  7. Á að vera neyðaropnun á glugganum mínum?
  8. Á að vera hallaopnun á glugganum mínum?
  9. Á að vera loftræstiventill á glugganum mínum?

„Við aðstoðum þig í öllu ferlinu! Ef þú lendir í vandræðum eða ert í vafa um eitthvað erum alltaf til þjónustu reiðubúin við símann!“


- Hafliði, sölumaður

Hvaða efni á ég að velja?

Þú getur valið nýju útihurðina með hliðarþili úr tré og tré/áli. Hvað verður fyrir valinu fyrir húsið fer eftir ýmsu. Ef þú vilt að viðhald sé í lágmarki ættirðu að íhuga að panta einingar úr tré/áli eða plasti. Mundu þó að hafa útlit heimilisins í huga.

Hvernig tek ég mál fyrir útihurðir með hliðarþili?

Utanverð mæling frá steini í stein. Þetta er mál opsins.

 

Þú þarft að mæla á fleiri stöðum þar sem dyraopið gæti verið skakkt.

 

Síðan dregur þú 2,5 cm frá breidd og hæð opsins. Þá hefur þú fengið mál karmsins.

 

Þú færir málin inn í verðreiknivélina.

Hvernig listar eiga að vera á einingunni minni?

Við mælum alltaf með að nota orkusparandi lista ef það er hægt. Orkusparandi listar eru listar sem eru límdir á glerið. Orkusparandi listar eru orkuvænn kostur. Þverskerandi listar skipta glerinu upp í marga glerfleti.

Á ég að velja tvöfalt eða þrefalt gler?

Báðar þessar rúðutegundir uppfylla gildandi byggingareglugerðir og því getur þú valið bæði tvöfalt eða þrefalt gler áhyggjulaus. Við mælum aðeins með þreföldu gleri fyrir stóra glugga eða ef húsið er einangrað samkvæmt orkuflokki A, þar sem annars gæti tekið mörg ár að ná upp í kostnaðinn sem fylgir þreföldu gleri.

Hvernig lás á ég að velja?

Við bjóðum upp á tvær tegundir lása. Lestu hér hvað hafa þarf í huga áður en lás er valinn fyrir aðalhurð.

Snerill/lyklalás

Ef þú velur þessa lausn er snerill festur á innanverða hliðina en sílinderlás að utan. Með þessari lausn er alltaf hægt að nota dyrnar sem flóttaleið í eldsvoða. Aftur á móti geta innbrotsþjófar einnig notað hana sem útgang.

Lyklalás/lyklalás

Þú getur valið að láta festa sílinderlásinn bæði að innan og utanverðu. Þessi lausn hentar vel þar sem þjófar geta ekki notað dyrnar sem flóttaleið.
Við mælum með því að lykillinn sé alltaf hafður í hurðinni þegar þú ert heima, ef eldur skyldi kvikna.

Í hvaða stíl á nýja útihurðin mín með hliðarþili að vera?

Þegar kemur að því að kaupa útihurð er mikilvægt að kaupa hurð sem hentar húsinu. Ef þú býrð til dæmis í sígildu glæsihýsi ættirðu að velja hurð með meiri smáatriðum en ef þú býrð í funkis-húsi. Þú getur til dæmis valið fyllingar, lista og jafnvel grunnstykki. Þetta gefur heimili þínu fallegt yfirbragð. Ef þú býrð í nútímalegu húsi, sem er t.d. í funkisstíl, ættir þú að velja látlausa útihurð.

Hurðir með hliðarþili

Þú getur alltaf látið festa hliðarþil í sama dyrakarm og útihurðina – einu undantekningarnar eru hurðir úr tré/áli sem opnast inn. Þá þarf að panta einingarnar tvær sína í hvoru lagi.
Ef festa á hliðarþil í sama dyrakarm og hurð sem hefur verið pöntuð skal taka það fram í athugasemdareitnum í innkaupakörfunni.

Fulningahurðir

Margar mismunandi tegundir eru til af fulningahurðum en þær samanstanda alltaf af karmi og hurðarramma. Í hurðarrammann getur þú valið um eitt eða fleiri gler og/eða eina eða fleiri fyllingar. Því er hægt að hanna hurðirnar á marga mismunandi máta og þess vegna henta þær í flest hús. Vönduðum fulningahurðum Skanva hefur verið mjög vel tekið.

 

Flekahurð

Ef þú vilt geta séð út getur þú valið hurð með litlum glugga. Glerið er fáanlegt með mismunandi skurði. Flekahurðir eru afar vinsælar, sérstaklega í nýjum húsum. Flekahurðir eru notaðar sem útihurðir í nútímalegum húsum og fulningahurðir eru oftast notaðar í hliðarinnganga.

Hver er opnunarstefna hurðarinnar minnar?

Þú skalt standa þeim megin sem útihurðin á að opnast. Ef hurðin á að opnast út skaltu standa við hana utanverða. Ef hjarirnar eiga að vera vinstra megin er opnunarstefnan út til vinstri. Ef hurðin á að opnast inn skaltu standa við hana innanverða. Ef hjarirnar eiga að vera hægra megin opnast hurðin inn á við til hægri. Nánari upplýsingar eru í leiðbeiningum um mælingu á flipanum UPPLÝSINGAR.

Í hvaða lit á einingin að vera?

Flestir velja að hafa útihurðina og hliðarþilið í sama lit og gluggarnir á húsinu. Þetta er öruggasti valkosturinn og um leið það val sem líklegast er að þú verðir ánægð(ur) með þar sem húsið fær samræmt og látlaust yfirbragð.

Ertu tilbúin(n) að panta útihurð með hliðarþili?

Hafa samband

Við hjá Skanva leggjum okkur fram um að veita viðskiptavinum góða þjónustu með persónulegri leiðsögn til að þú finnir fyrir öryggi í gegnum allt ferlið við val á glugga.

 

Nánari upplýsingar eru á vefsíðu okkar. Þér er einnig velkomið að hafa samband og fá tilboð í verkið án nokkurra skuldbindinga.