Mæling
Leiðbeiningar um mælingu
Hér getur þú sótt nákvæmar og aðgengilegar leiðbeiningar um mælingu og festingu glugga og hurða. Athugið: Mismunandi er hvernig einingar úr tré, tré/áli og plasti eru settar upp og því skaltu velja þær uppsetningarleiðbeiningar sem eiga við um gluggann eða hurðina sem á að setja upp.
Leiðbeiningar um mælingu – myndband
Mæling glugga
Mæling hurða
Svona setur þú tvískipta hurð í
Áður en þú pantar hurðir og hliðarhengda glugga
Þegar þú pantar hliðarhengda glugga og hurðir þarf að velja rétta opnunarstefnu í pöntuninni.
Ef eining á að opnast út er tekin fram opnunarstefna að utanverðu.
- Ef hjarirnar eru hægra megin er opnunarstefnan til hægri út á við.
- Ef hjarirnar eru vinstra megin er opnunarstefnan til vinstri út á við.
Ef einingin á að opnast inn er tekin fram opnunarstefna að innanverðu.
- Ef hjarirnar eru hægra megin er opnunarstefnan til hægri inn á við.
- Ef hjarirnar eru vinstra megin er opnunarstefnan til vinstri inn á við.
Ef um tvöfaldar hurðir er að ræða er opnunarstefna fyrstu hurðarinnar sem er opnuð gefin upp í pöntuninni.
Hurðir fást bæði með opnun inn og út.