Skanva.is | Gluggar og hurðir á netinu

 24 klst. leiðréttingarfrestur

 10 ára ábyrgð

  Slagveðursprófun

  Bókaðu fund fyrir næsta verkefni

 24 klst. leiðréttingarfrestur

 10 ára ábyrgð

  Slagveðursprófun

  Bókaðu fund fyrir næsta verkefni

Hannaðu sjálfur

Hannaðu þína eigin glugga og hurðir

Skanva framleiðir glugga og hurðir eftir máli frá þér. Það þýðir að þú getur verið með á hliðarlínunni þegar kemur að því að setja einingarnar saman til að varan uppfylli kröfur þínar og væntingar.

 

Þannig getur þú sett þinn eigin stimpil á lokaniðurstöðuna. Þú ákveður einnig hvort rúðurnar eigi að vera úr venjulegu tæru gleri eða möttu sandblásnu gleri.

Gluggar í öllum stærðum

Öryggispakka

Öryggislæsingajárn er staðalbúnaður

Auk þess að framleiða glugga og dyr í algjörum toppgæðum hefur Skanva einnig tryggt tréglugga, tré- og álglugga og hurðir með festingum til að gera það sérlega erfitt að brjótast inn á heimili sem búin eru vörum frá Skanva.

 

Öryggispakkinn, sem er ókeypisinniheldur öryggislæsingajárn, punktlímdar rúður og öryggislása á hurðum.


Öryggispakkinn okkar tryggir þér hugarró. Traust öryggiskerfi ver heimilið fyrir innbrotsþjófum þegar þú skreppur í bæinn eða ferð í sumarfrí.

New Yorker-veggur

New Yorker-veggur eftir eigin máli

Við hjá Skanva erum með hina fullkomnu lausn fyrir New Yorker-vegg hvort sem er á heimilið eða skrifstofuna. New Yorker-gluggar hafa marga kosti og geta til dæmis nýst til að skipta upp herbergjum á heimili eða skerma af svæði á skrifstofu.

 

Til að skapa einstakan New Yorker-stíl getur þú valið um liti og glertegundir í reiknivél okkar.

 

Okkar lausn á herbergjaskiptingu tryggir þér New Yorker-glervegg á hagstæðu verði.

Alltaf 10 ára ábyrgð

Það er 10 ára ábyrgð á öllum vörum frá Skanva. Þegar þú verslar hjá okkur eru þér tryggðar vörur í hæsta gæðaflokki. Vörur okkar eru hannaðar út frá óskum viðskiptavina í gegnum árin.

 

Við hjá Skanva leggjum okkur fram um að veita viðskiptavinum góða þjónustu með persónulegum ráðleggingum til að þú finnir fyrir öryggi í gegnum allt ferlið.

Öryggispakki fylgir

Þrátt fyrir að það sé erfitt að brjótast inn í gegnum okkar glugga og hurðir, höfum við uppfært allar festingar á tré og tré/ál gluggum okkar. Þetta lengir verulega tímann sem það tekur að brjótast inn og þjófurinn því mun líklegri til að hverfa frá. Þú getur lesið nánar hér.

Pantaðu beint frá verksmiðju

Með því að versla glugga og hurðir á netinu hjá okkur, sparar þú milliliðinn. Það þýðir að þú verslar sérsniðna glugga og hurðir beint frá verksmiðju á bestu mögulegum kjörum. Lestu nánar um kostina sem Skanva býður

Þarftu að lagfæra pöntunina þína?

Nú getur þú opnað og breytt pöntun hjá okkur í 24 tíma eftir að þú sendir hana inn.

Kauptu núna og leiðréttu síðar

Kvistlaus gæðaviður

Gluggarnir okkar og hurðir úr tré og tré/áli eru úr hægvaxandi gæðavið, sem er þekktur fyrir styrk og endingu. Til að koma í veg fyrir trjákvoðusmit er viðurinn fingraður, sem þýðir að kvistirnir eru skornir burt. Einnig er um að ræða límtré sem gerir það að verkum að mun ólíklegra er að viðurinn verpist. Lestu meira

Fylgdu okkur á Instagram