Útihurðir með hliðarþiljum, innopnandi eða útopnandi

Hér getur þú valið útidyrahurð með hliðarþili í sama karmi í stað þess að fá hurðina og hliðarþilið hvort í sínum karminum. Það eru nokkur mikilvæg atriði sem vert er að hafa í huga þegar kemur að því að velja útihurð með hliðarþil í sömu einingu:

  • Ekki hægt að fá innopnandi hurð með hliðarþili - Ef þú ætlar að hafa hurðina innopnandi þarf að panta hliðarþil og hurð hvort í sínum karmi og setja einingarnar saman.
  • Ekki hægt að fá útihurð með hliðarþili í sama karmi í PVC
15.0000% afsláttur
  • Tré
  • Tré/Ál
  • PVC
Efnisval
Útihurð með hliðarþili og efri glugga 15% Hannaðu sjálfur

Útihurð með hliðarþili og efri glugga

Með 1 gleri

262.308 kr.
308.597 kr.
Útihurð með hliðarþili 15% Hannaðu sjálfur

Útihurð með hliðarþili

með tveimur glerflötum

267.799 kr.
315.058 kr.
Útihurð með hliðarþili 15% Hannaðu sjálfur

Útihurð með hliðarþili

hurð með 1 gleri og hliðarþil með 1 gleri

255.500 kr.
300.589 kr.
Útihurð með hliðarþili 15% Hannaðu sjálfur

Útihurð með hliðarþili

með 1 fyllingu og 1 gleri

274.659 kr.
323.128 kr.
Útihurð með hliðarþili 15% Hannaðu sjálfur

Útihurð með hliðarþili

hurð með 1 fyllingu og 1 gleri og hliðarþil með 1 gleri

250.322 kr.
294.496 kr.
Útihurð með hliðarþili 15% Hannaðu sjálfur

Útihurð með hliðarþili

hurð með 1 fyllingu og 2x2 gleri og hliðarþil með 1 gleri

262.661 kr.
309.013 kr.
Útihurð með hliðarþili 15% Hannaðu sjálfur

Útihurð með hliðarþili

hurð með 1 fyllingu og 2x3 gleri og hliðarþil með 1 gleri

268.560 kr.
315.952 kr.
Útihurð með hliðarþili 15% Hannaðu sjálfur

Útihurð með hliðarþili

hurð slétt og hliðarþil með 1 gleri

335.934 kr.
395.216 kr.
Útihurð með hliðarþili 15% Hannaðu sjálfur

Útihurð með hliðarþili

hurð slétt með hálfhringsglugga og hliðarþili með 1 gleri

372.234 kr.
437.922 kr.
Útihurð með hliðarþili 15% Hannaðu sjálfur

Útihurð með hliðarþili

hurð slétt með kringlóttum glugga og hliðarþili með 1 gleri

370.405 kr.
435.770 kr.
Útihurð með hliðarþili 15% Hannaðu sjálfur

Útihurð með hliðarþili

hurð slétt með skáhöllum ferhyrndum glugga og hliðarþili með 1 gleri

358.615 kr.
421.900 kr.
Útihurð með hliðarþili 15% Hannaðu sjálfur

Útihurð með hliðarþili

hurð með 3 fyllingum og hliðarþil með 1x3 gleri

268.089 kr.
315.399 kr.
Útihurð með hliðarþili 15% Hannaðu sjálfur

Útihurð með hliðarþili

hurð með 2x3 fyllingum og hliðarþil með 1x3 gleri

282.731 kr.
332.625 kr.
Útihurð með hliðarþili 15% Hannaðu sjálfur

Útihurð með hliðarþili

hurð með 2x4 fyllingum og hliðarþil með 1x4 gleri

294.433 kr.
346.392 kr.

Efnisval

Hvaða efni á ég að velja?

Þú getur valið nýju útihurðina með hliðarþili úr tré og tré/áli. Hvað verður fyrir valinu fyrir húsið fer eftir ýmsu. Ef þú vilt að viðhald sé í lágmarki ættirðu að íhuga að panta einingar úr tré/áli eða plasti. Mundu þó að hafa útlit heimilisins í huga.

Máltaka

Hvernig tek ég mál fyrir útihurðir með hliðarþili?

Utanverð mæling frá steini í stein. Þetta er mál opsins.

 

Þú þarft að mæla á fleiri stöðum þar sem dyraopið gæti verið skakkt.

 

Síðan dregur þú 2,5 cm frá breidd og hæð opsins. Þá hefur þú fengið mál karmsins.

 

Þú færir málin inn í verðreiknivélina.

Listar

Hvernig listar eiga að vera á einingunni minni?

Við mælum alltaf með að nota orkusparandi lista ef það er hægt. Orkusparandi listar eru listar sem eru límdir á glerið. Orkusparandi listar eru orkuvænn kostur. Þverskerandi listar skipta glerinu upp í marga glerfleti.

Gler

Á ég að velja tvöfalt eða þrefalt gler?

Báðar þessar rúðutegundir uppfylla gildandi byggingareglugerðir og því getur þú valið bæði tvöfalt eða þrefalt gler áhyggjulaus. Við mælum aðeins með þreföldu gleri fyrir stóra glugga eða ef húsið er einangrað samkvæmt orkuflokki A, þar sem annars gæti tekið mörg ár að ná upp í kostnaðinn sem fylgir þreföldu gleri.

Snerill/lyklalás

Ef þú velur þessa lausn er snerill festur á innanverða hliðina en sílinderlás að utan. Með þessari lausn er alltaf hægt að nota dyrnar sem flóttaleið í eldsvoða. Aftur á móti geta innbrotsþjófar einnig notað hana sem útgang.

Lyklalás/lyklalás

Þú getur valið að láta festa sílinderlásinn bæði að innan og utanverðu. Þessi lausn hentar vel þar sem þjófar geta ekki notað dyrnar sem flóttaleið.
Við mælum með því að lykillinn sé alltaf hafður í hurðinni þegar þú ert heima, ef eldur skyldi kvikna.

Læsingar

Hvernig lás á ég að velja?

Við bjóðum upp á tvær tegundir lása. Lestu hér hvað hafa þarf í huga áður en lás er valinn fyrir aðalhurð.

Persónulegur stíll

Í hvaða stíl á nýja útihurðin mín með hliðarþili að vera?

Þegar kemur að því að kaupa útihurð er mikilvægt að kaupa hurð sem hentar húsinu. Ef þú býrð til dæmis í sígildu glæsihýsi ættirðu að velja hurð með meiri smáatriðum en ef þú býrð í funkis-húsi. Þú getur til dæmis valið fyllingar, lista og jafnvel grunnstykki. Þetta gefur heimili þínu fallegt yfirbragð. Ef þú býrð í nútímalegu húsi, sem er t.d. í funkisstíl, ættir þú að velja látlausa útihurð.

Hliðarþil

Hurðir með hliðarþili

Þú getur alltaf látið festa hliðarþil í sama dyrakarm og útihurðina – einu undantekningarnar eru hurðir úr tré/áli sem opnast inn. Þá þarf að panta einingarnar tvær sína í hvoru lagi.
Ef festa á hliðarþil í sama dyrakarm og hurð sem hefur verið pöntuð skal taka það fram í athugasemdareitnum í innkaupakörfunni.

Fulningahurðir

Margar mismunandi tegundir eru til af fulningahurðum en þær samanstanda alltaf af karmi og hurðarramma. Í hurðarrammann getur þú valið um eitt eða fleiri gler og/eða eina eða fleiri fyllingar. Því er hægt að hanna hurðirnar á marga mismunandi máta og þess vegna henta þær í flest hús. Vönduðum fulningahurðum Skanva hefur verið mjög vel tekið.

 

Flekahurð

Ef þú vilt geta séð út getur þú valið hurð með litlum glugga. Glerið er fáanlegt með mismunandi skurði. Flekahurðir eru afar vinsælar, sérstaklega í nýjum húsum. Flekahurðir eru notaðar sem útihurðir í nútímalegum húsum og fulningahurðir eru oftast notaðar í hliðarinnganga.

Litaval

Í hvaða lit á einingin að vera?

Flestir velja að hafa útihurðina og hliðarþilið í sama lit og gluggarnir á húsinu. Þetta er öruggasti valkosturinn og um leið það val sem líklegast er að þú verðir ánægð(ur) með þar sem húsið fær samræmt og látlaust yfirbragð.

Opnunarátt

Hver er opnunarstefna hurðarinnar minnar?

Þú skalt standa þeim megin sem útihurðin á að opnast. Ef hurðin á að opnast út skaltu standa við hana utanverða. Ef hjarirnar eiga að vera vinstra megin er opnunarstefnan út til vinstri. Ef hurðin á að opnast inn skaltu standa við hana innanverða. Ef hjarirnar eiga að vera hægra megin opnast hurðin inn á við til hægri. Nánari upplýsingar eru í leiðbeiningum um mælingu á flipanum UPPLÝSINGAR.

Loading...