Tvískiptar hurðir eru einnig kallaðar helmingaðar hurðir eða tveggja hluta hurðir.

Helmingaðar hurðir, sem einnig eru kallaðar tvískiptar hurðir eða tveggja hluta hurðir, hafa mikið að segja um útlit hússins. Með helmingaðri hurð er hægt að opna efri eða neðri hluta hurðarinnar, eða báða hlutana, eftir hentugleika. Þess vegna býður Skanva upp á ýmsa möguleika til að velja á milli

20% afsláttur tré
20% afsláttur tré/Ál
10.0000% afsláttur
  • Tré
  • Tré/Ál
  • PVC

Hannaðu sjálf/ur

Tvískiptar hurðir hjá Skanva

Hjá okkur geturðu pantað tvískiptar hurðir. Þær geta hentað vel þar sem nauðsynlegt er að lofta vel út og ekki kostur á öðrum opnanlegum fögum. Ráðgjafar Skanva vilja þó koma því á framfæri að á Íslandi þarf að fara vel yfir umhverfisaðstæður á þeim stað sem hurðin kemur til með að vera. Þar sem hurðarblaðið er rofið í miðju þolir hún vitanlega ekki sama slagveður og venjulegar hurðir og því er mikilvægt upp á endingu hurðarinnar að hún fái skjól á framtíðarheimili sínu.

Efnisval

Hvaða efni á ég að velja?

Hægt er að velja um tré eða tré/ál á tvískiptar hurðir. 

Máltaka

Hvernig tek ég mál fyrir tvískipta hurð?

Utanverð mæling frá steini í stein. Þetta er mál opsins.

 

Þú þarft að mæla á fleiri stöðum þar sem dyraopið gæti verið skakkt.

 

Síðan dregur þú 2,5 cm frá breidd og hæð opsins. Þá hefur þú fengið mál karmsins.

 

Þú færir málin inn í verðreiknivélina.

Orkukröfur

Tvöfalt eða þrefalt gler fyrir tvískiptu hurðina mína?

Báðar þessar rúðutegundir uppfylla gildandi byggingareglugerðir og því getur þú valið bæði tvöfalt eða þrefalt gler áhyggjulaus. Hafðu þó í huga að þrefalda glerið veitir betri einangrun og í því getur falist sparnaður í hitun húsnæðisins á ákveðnum svæðum landsins.

Snerill/lyklalás

Ef þú velur þessa lausn er snerill festur á innanverða hliðina en sílinderlás að utan. Með þessari lausn er alltaf hægt að nota dyrnar sem flóttaleið í eldsvoða. Aftur á móti geta innbrotsþjófar einnig notað hana sem útgang.

Lyklalás/lyklalás

Þú getur valið að láta festa sílinderlásinn bæði að innan og utanverðu. Þessi lausn hentar vel þar sem þjófar geta ekki notað dyrnar sem flóttaleið. Við mælum með því að lykillinn sé alltaf hafður í lásnum þegar þú ert heima, ef eldur skyldi kvikna.

Læsingabúnaður

Hvernig lás á ég að velja?

Hjá Skanva geturðu fengið sílinder í hurðina. Ef þú kýst að nota annan sílinder eða versla hann annars staðar kemur hurðin þó tilbúin fyrir sílinder frá verksmiðju.

Hliðarþil

Hurðir með hliðarþili

Ekki er algengt að hliðarþil séu fest á tvískiptar hurðir en það er mögulegt. Þú getur látið setja upp hliðarþil í sama ramma og tvískiptu hurðina. Ef setja á upp hliðarþil í sama ramma og tvískiptu hurðina skal taka það fram í athugasemdareitnum í innkaupakörfunni.

Opnunarátt

Hver er opnunarstefna hurðarinnar minnar?

Hægt er að opna tvískiptar hurðir út en við seljum ekki tvískiptar hurðir sem opnast inn. Því skaltu standa fyrir utan húsið og horfa á dyrnar. Ef hjarirnar eiga að vera vinstra megin er opnunarstefnan út til vinstri. Nánari upplýsingar eru í leiðbeiningum um mælingu á flipanum Upplýsingar.

Litaval

Í hvaða lit á tvískipta hurðin að vera?

Flestir velja að hafa tvískipta hurð í sama lit og gluggarnir á húsinu. Þetta er öruggasti valkosturinn og um leið það val sem líklegast er að þú verðir ánægð(ur) með þar sem húsið fær samræmt og látlaust yfirbragð.

Loading...