Efnisval
Hvaða efni á ég að velja?
Hér setjum við fram þrjár spurningar sem geta hjálpað þér að komast að því hvernig efni þú þarft að velja fyrir sólstofuna eða aukaherbergið sem þú getur notað allt árið um kring.
- Er mikilvægt fyrir mig að viðhald sé í lágmarki?
- Vil ég halda útliti húsnæðisins óbreyttu?
- Hvað mega sólskálaeiningarnar kosta?
Ef það er mikilvægt að viðhald sé í lágmarki er tré/ál hugsanlega rétti kosturinn fyrir þig. Áður en þú velur þessi efni þarftu að meta hvort þau samræmist útliti hússins. Auk þess hefur efnisval áhrif á endanlegt verð.
Máltaka
Hvernig tek ég mál fyrir sólskálaeiningar?
Einingar fyrir sólstofu eru mældar þannig:
- Utanverð mæling frá steini í stein. Þetta er mál opsins.
- Athugið: Veggurinn gæti verið skakkur og því þarf að mæla á nokkrum stöðum.
- Dragðu 2,5 cm frá minnsta máli breiddar og hæðar opsins.
- Þegar þú hefur dregið 2,5 cm frá hefurðu fengið mál gluggakarmsins.
- Þú notar mál karmsins þegar þú slærð þau inn í verðreiknivél okkar.
Athugið:
Ef margar einingar fara í sama op mælum við með því að 10 mm bil sé haft á milli þeirra.
Toppstýrður gluggi með rauf allan hringinn
Rauf
Hvað er rauf og á ég að panta með eða án raufar?
Rauf er fræsing í ramma einingar. Það getur komið sér vel að velja rauf þar sem rauf getur til dæmis auðveldað uppsetningu lista. Þó er mismunandi hvort smiðir kjósa að hafa rauf eða ekki.
Orkukröfur
Tvöfalt eða þrefalt gler fyrir gluggana mína?
Báðar þessar rúðutegundir uppfylla gildandi byggingareglugerðir og því getur þú valið bæði tvöfalt eða þrefalt gler áhyggjulaus. Við mælum þó aðeins með þreföldu gleri fyrir stóra glugga eða ef húsið er einangrað samkvæmt orkuflokki A, þar sem annars gæti tekið mörg ár að ná upp í kostnaðinn sem fylgir þreföldu gleri.
Grunnstykki
Á ég að velja grunnstykki?
Þú getur valið grunnstykki fyrir einingar úr tré og tré/áli en ekki fyrir PVC-einingar
Byggingafræðilega séð gerir grunnstykki sólskálaeininguna ekki sterkbyggðari. Grunnstykki getur hins vegar gefið einingunum sígildara útlit. Það fer því eftir tegund húsnæðis og þínum smekk hvort velja skuli grunnstykki.
Aðlögun grunnstykkja að öðrum einingum
Athugaðu: Ef þú velur grunnstykki fyrir sólskálaeiningar og það á að nota þær með svalahurð skaltu gæta að því að botnlisti sólskálaeininganna og þröskuldur svalahurðarinnar séu í sömu hæð því annars flútta grunnstykkin ekki.
„Botnlisti sem hliðarkarmur“ botnlisti úr harðvið er 4,5 cm hár en álþröskuldur 2,5 cm hár.
Loftræstiventill
Á ég að panta með eða án loftræstiventli?
Einn loftræstiventill gerir ekkert gagn. Til að þeir borgi sig þarf loftið sem kemur inn um einn loftræstiventil að geta streymt í gegnum íbúðina og út um annan loftræstiventil.
Þess vegna þurfa fleiri loftræstiventlar að vera í íbúðinni og þeir eiga helst að vera staðsettir hver á móti öðrum. Hafa ber þó í huga að aðeins er hægt að lofta vel út með því að opna dyr eða glugga. Auk þess er hægt að koma rafviftu fyrir á hentugum stað í húsinu.