Efnisval
Hvaða efni á ég að velja?
Þú getur valið um tré og tré/ál fyrir nýju hurðina. Hvað verður fyrir valinu fyrir húsið fer eftir ýmsu. Ef þú vilt að viðhald sé í lágmarki ættirðu að íhuga að panta einingar úr tré/áli eða plasti. Mundu þó að hafa útlit heimilisins í huga.
Máltaka
Hvernig tek ég mál fyrir útihurð?
Utanverð mæling frá steini í stein. Þetta er mál opsins.
Þú þarft að mæla á fleiri stöðum þar sem dyraopið gæti verið skakkt.
Síðan dregur þú 2,5 cm frá breidd og hæð opsins. Þá hefur þú fengið mál karmsins.
Þú færir málin inn í verðreiknivélina.
Listar
Hvernig listar eiga að vera á útihurðinni minni?
Við mælum alltaf með að nota orkusparandi lista ef það er hægt. Orkusparandi listar eru listar sem eru límdir á glerið. Orkusparandi listar eru orkuvænn kostur. Þverskerandi listar skipta glerinu upp í marga glerfleti.
Orkukröfur
Á ég að velja tvöfalt eða þrefalt gler?
Báðar þessar rúðutegundir uppfylla gildandi byggingareglugerðir og því getur þú valið bæði tvöfalt eða þrefalt gler áhyggjulaus. Við mælum aðeins með þreföldu gleri fyrir stóra glugga eða ef húsið er einangrað samkvæmt orkuflokki A, þar sem annars gæti tekið mörg ár að ná upp í kostnaðinn sem fylgir þreföldu gleri.
Snerill/lyklalás
Ef þú velur þessa lausn er snerill festur á innanverða hliðina en sílinderlás að utan. Með þessari lausn er alltaf hægt að nota dyrnar sem flóttaleið í eldsvoða. Aftur á móti geta innbrotsþjófar einnig notað hana sem útgang.
Lyklalás/lyklalás
Þú getur valið að láta festa sílinderlásinn bæði að innan og utanverðu. Þessi lausn hentar vel þar sem þjófar geta ekki notað dyrnar sem flóttaleið.
Við mælum með því að lykillinn sé alltaf hafður í hurðinni þegar þú ert heima, ef eldur skyldi kvikna.
Læsingar
Hvernig lás á ég að velja?
Við bjóðum upp á tvær tegundir lása. Lestu hér hvað hafa þarf í huga áður en lás er valinn fyrir aðalhurð.
Persónulegur stíll
Í hvaða stíl á útihurðin að vera?
Þegar kemur að því að kaupa útihurð er mikilvægt að kaupa hurð sem hentar húsinu. Ef þú býrð til dæmis í sígildu glæsihýsi ættirðu að velja hurð með meiri smáatriðum en ef þú býrð í funkis-húsi. Þú getur til dæmis valið fyllingar, lista og jafnvel grunnstykki. Þetta gefur heimili þínu fallegt yfirbragð. Ef þú býrð í nútímalegu húsi, sem er t.d. í funkisstíl, ættir þú að velja látlausa útihurð.
Hliðarþil
Hurðir með hliðarþili
Þú getur alltaf látið festa hliðarþil í sama dyrakarm og útihurðina – einu undantekningarnar eru hurðir úr tré/áli sem opnast inn. Þá þarf að panta einingarnar tvær sína í hvoru lagi.
Ef festa á hliðarþil í sama dyrakarm og hurð sem hefur verið pöntuð skal taka það fram í athugasemdareitnum í innkaupakörfunni.
Fulningahurðir
Margar mismunandi tegundir eru til af fulningahurðum en þær samanstanda alltaf af karmi og hurðarramma. Í hurðarrammann getur þú valið um eitt eða fleiri gler og/eða eina eða fleiri fyllingar. Því er hægt að hanna hurðirnar á marga mismunandi máta og þess vegna henta þær í flest hús. Vönduðum fulningahurðum Skanva hefur verið mjög vel tekið.
Flekahurð
Ef þú vilt geta séð út getur þú valið hurð með litlum glugga. Glerið er fáanlegt með mismunandi skurði. Flekahurðir eru afar vinsælar, sérstaklega í nýjum húsum. Flekahurðir eru notaðar sem útihurðir í nútímalegum húsum og fulningahurðir eru oftast notaðar í hliðarinnganga.
Opnunarátt
Hver er opnunarstefna útihurðarinnar minnar?
Þú skalt standa þeim megin sem aðalhurðin á að opnast. Ef hurðin á að opnast út skaltu standa við hana utanverða. Ef hjarirnar eiga að vera vinstra megin er opnunarstefnan út til vinstri. Ef hurðin á að opnast inn skaltu standa við hana innanverða. Ef hjarirnar eiga að vera hægra megin opnast hurðin inn á við til hægri. Nánari upplýsingar eru í leiðbeiningum um mælingu á flipanum UPPLÝSINGAR.
Litaval
Í hvernig lit á útihurðin að vera?
Flestir velja að hafa útihurðina í sama lit og gluggana á húsinu. Þetta er öruggasti valkosturinn og um leið það val sem líklegast er að þú verðir ánægð(ur) með þar sem húsið fær samræmt og látlaust yfirbragð.