Gæði frá Skanva

Gæði

Kostirnir við að versla hjá Skanva:

 

  • Gæðagluggar og -hurðir
  • Samkeppnishæft verð
  • Auðvelt og fljótlegt að panta
  • CE-merktir gluggar og hurðir
  • 10 ára ábyrgð
  • Stuttur afhendingartími
  • Gegnlitaðir állistar á öllum gluggum og hurðum úr tré og tré/áli
  • Innbrotsheldar festingar (úr tré og tré/áli) Nánar um innbrotsvarnir
  • Gæðaviður, kvistlaus gæðafura (úr tré og tré/áli)

Gagnsæ og samkeppnishæf verðlagning

Hjá okkur þarf aldrei að bíða eftir tilboði því verðið er gefið upp þegar í stað. Þetta er mikill kostur þegar stórt endurbyggingarverkefni stendur fyrir dyrum. Við notum ekki dýra milliliði og þegar þú verslar í vefverslun okkar, beint úr verksmiðjunni okkar, sparar þú bæði tíma og peninga.

Aluminiumsliste i vinduerAluminiumsliste i vinduer

Við framleiðum alltaf glerlista úr áli

Við höfum ákveðið að allar hurðir og gluggar frá okkur eigi að vera með glerlistum úr gegnlituðu áli. Glerlistar úr áli á hliðum og að ofan eru gerðir þannig að þeir líkjast hefðbundnum tréglerlistum en þú nýtur þeirra kosta sem fylgja állistum. Neðst á glugganum eru állistarnir búnir lekakanti sem beinir vatni frá bæði glugganum og veggnum.


Endingartími eða líftími hefðbundinna tréglerlista er mjög háður umhverfisaðstæðum og staðsetningu og því viðhaldi sem þeir fá. Þetta vandamál er úr sögunni með álglerlistum þar sem ekki þarf að eyða miklum tíma í að viðhalda þeim.

Køb CE certificerede vinduer og døreKøb CE certificerede vinduer og døre

Vottanir

Við leggjum mikla áherslu á vottanir því við viljum að þú getir gengið að gæðunum vísum. Allir gluggar og hurðir frá Skanva eru með CE-merki og uppfylla því alla gildandi evrópska gæðastaðla.

A mærkede vinduerA mærkede vinduer
Energiruder med varm kantEnergiruder med varm kant

Orkusparandi gler með varmaþéttilista

Orðið „varmaþéttilisti“ á við um fjarlægðarlista sem býr yfir góðum varmaeiginleikum og minnkar líkur á rakaþéttingu að innan.

Regn vind storm ikonRegn vind storm ikon

Slagveðursprófun

Skanva ehf. framleiðir sínar vörur sjálft og við gerum mikið úr því að vörur okkar standist þær kröfur sem gerðar eru. Vörur okkur eru CE-merktar og gæðavottaðar.  Það var Danska tæknistofnunin í Árósum sem gerði eftirfarandi prófun EN 14351-1:2016 +A2:2016, yfirstaðall, á vörum Skanva ehf. með íslenskar kröfur sem útgangspunkt:

  • EN 1026:2016 – Loftþéttleiki
  • EN 1027:2016 – Slagregnsþéttleiki
  • EN 12211:2016 – Álagsþol gagnvart vindálagi


Vörur Skanva ehf. stóðst eftirfarandi prófanir og er því til sönnunar vottunin hér til hliðar. Því er hægt að segja að vörur okkar séu framleiddar og hannaðar fyrir íslenskar aðstæður.

Persónuleg ráðgjöf

Sem viðskiptavinur átt þú bein viðskipti við Skanva og getur hvenær sem er haft samband við sérfræðinga okkar í gegnum heimasíðuna. Þrátt fyrir að allar upplýsingar séu aðgengilegar á netinu þá leggjum við einnig mikla áherslu á persónulega ráðgjöf. Við erum með netspjall á heimasíðunni þar sem manneskja svarar þér og það er alltaf hægt að fá aðstoð í gegnum Facebook, tölvupóst eða símleiðis á opnunartíma.

 

Við erum alltaf reiðubúin að aðstoða þig

Úrvalstré - kvistlaus gæðaviður

Það er lykilatriði að nota bestu hlutana af trénu við framleiðslu glugga og hurða. Gæði viðarins ræður öllu um endingu, virkni og viðhald – og ekki síst ásýnd heimilisins þegar þú endurnýjar glugga og hurðir.


Þess vegna notum við hjá Skanva aðeins kjarnvið fyrir ytra byrði glugganna okkar og hurðanna. Kjarnviður hefur þann eiginleika að draga ekki í sig mikinn raka. Kjarnviður er sterkasti hlutinn af miðju trésins, sá hluti sem er ætlað að styrkja vöxt trésins og halda því hraustu og heilbrigðu.


Ástæða þess að kjarnviður hentar svona vel til framleiðslu á gluggum og hurðum er að í kjarnanum myndast efni sem gegndreypa allan viðinn og valda því að kjarnviðurinn tekur ekki til sín meira en 20% raka, auk þess sem hlutverk kjarnviðar er að styðja við vöxt trésins, stofns þess, greina og róta – og þetta er því sterkasti hluti trésins.


Þegar tré vaxa fara vatn og næringarefni upp í gegnum tréð undir berkinum með útgufun. Ysta lagið undir berkinum kallast safaviður og þetta lag dregur í sig mikinn raka sem flytur næringarefni og vatn um allt tréð, frá rótum til laufa.

 

Tré vaxa um einn árhring á hverju ári og um leið og nýr hringur bætist við stækkar kjarninn. Við það myndast efni í trénu sem hindra að kjarnviðurinn dragi í sig jafn mikinn raka og ytri lögin. Tré sem vaxa við örðugar aðstæður, í miklum vindi, kulda og rysjóttu veðri, vaxa hægar en önnur. Um leið verður kjarninn sterkari til að tréð lifi af við þessi erfiðu skilyrði.

 

Skanva notar við úr trjám sem vaxa á nyrstu svæðum Norðurlandanna, þar sem finna má mikið úrval af vönduðum kjarnvið frá náttúrunnar hendi. Við þessi harðneskjulegu skilyrði vaxa trén hægt og kjarnviðarhlutfall verður hærra.

LavenergiruderLavenergiruder

Orkusparandi gler

Þegar þú þarft að skipta um glugga og/eða hurðir gefst frábært tækifæri til að hámarka orkusparnað á heimilinu, því allir gluggarnir okkar eru að lágmarki með tvöföldu orkusparandi gleri og varmaþéttilista. Ef þú velur þrefalt orkusparandi gler með varmaþéttilista þá er það frábær framkvæmd fyrir þitt heimili. Gluggar með þreföldu gleri einangra mun betur – reyndar svo vel að daggarmarkið færist ofar og þannig má lágmarka súginn sem stundum myndast við glugga.


Allir gluggar frá Skanva eru með orkusparandi gleri. Tvöfalda glerið okkar er með U-gildi 1,1 en þrefalda glerið með hámarksorkusparnaði er með U-gildi 0,52. U-gildið tilgreinir einangrunargetu glersins – því lægra sem gildið er, þeim mun meiri er einangrunin.

Viðurkenndir birgjar

Við viljum vanda til verka, jafnt yst sem innst, og því eru allir birgjar okkar fyrir t.d. festingar, lása/sílindera, PVC-lista, húna, málningu o.fl. gæðavottaðir og leiðandi á sínu sviði. Þannig færum við ykkur bæði gæðavöru og breitt úrval. 

Kærnetræ ikonKærnetræ ikon

Úrvalstré - kvistlaus gæðaviður

Það er lykilatriði að nota bestu hlutana af trénu við framleiðslu glugga og hurða. Gæði viðarins ræður öllu um endingu, virkni og viðhald – og ekki síst ásýnd heimilisins þegar þú endurnýjar glugga og hurðir.


Þess vegna notum við hjá Skanva aðeins kjarnvið fyrir ytra byrði glugganna okkar og hurðanna. Kjarnviður hefur þann eiginleika að draga ekki í sig mikinn raka. Kjarnviður er sterkasti hlutinn af miðju trésins, sá hluti sem er ætlað að styrkja vöxt trésins og halda því hraustu og heilbrigðu.


Ástæða þess að kjarnviður hentar svona vel til framleiðslu á gluggum og hurðum er að í kjarnanum myndast efni sem gegndreypa allan viðinn og valda því að kjarnviðurinn tekur ekki til sín meira en 20% raka, auk þess sem hlutverk kjarnviðar er að styðja við vöxt trésins, stofns þess, greina og róta – og þetta er því sterkasti hluti trésins.


Þegar tré vaxa fara vatn og næringarefni upp í gegnum tréð undir berkinum með útgufun. Ysta lagið undir berkinum kallast safaviður og þetta lag dregur í sig mikinn raka sem flytur næringarefni og vatn um allt tréð, frá rótum til laufa.

 

Tré vaxa um einn árhring á hverju ári og um leið og nýr hringur bætist við stækkar kjarninn. Við það myndast efni í trénu sem hindra að kjarnviðurinn dragi í sig jafn mikinn raka og ytri lögin. Tré sem vaxa við örðugar aðstæður, í miklum vindi, kulda og rysjóttu veðri, vaxa hægar en önnur. Um leið verður kjarninn sterkari til að tréð lifi af við þessi erfiðu skilyrði.

 

Skanva notar við úr trjám sem vaxa á nyrstu svæðum Norðurlandanna, þar sem finna má mikið úrval af vönduðum kjarnvið frá náttúrunnar hendi. Við þessi harðneskjulegu skilyrði vaxa trén hægt og kjarnviðarhlutfall verður hærra.

Orkusparandi gler

Þegar þú þarft að skipta um glugga og/eða hurðir gefst frábært tækifæri til að hámarka orkusparnað á heimilinu, því allir gluggarnir okkar eru að lágmarki með tvöföldu orkusparandi gleri og varmaþéttilista. Ef þú velur þrefalt orkusparandi gler með varmaþéttilista þá er það frábær framkvæmd fyrir þitt heimili. Gluggar með þreföldu gleri einangra mun betur – reyndar svo vel að daggarmarkið færist ofar og þannig má lágmarka súginn sem stundum myndast við glugga.


Allir gluggar frá Skanva eru með orkusparandi gleri. Tvöfalda glerið okkar er með U-gildi 1,1 en þrefalda glerið með hámarksorkusparnaði er með U-gildi 0,52. U-gildið tilgreinir einangrunargetu glersins – því lægra sem gildið er, þeim mun meiri er einangrunin.

Lavenergiruder dannebrogsvindueLavenergiruder dannebrogsvindue

Markmið þín og væntingar

Allar vörur okkar eru sérsmíðaðar í samræmi við markmið þín og væntingar. Því getur þú valið lit, filmu, glertegund, rúður og stíl gluggans sjálf(ur). Verðútreikningar okkar miðast við tilteknar vörutegundir en ef þú finnur ekki það sem þú leitar að skaltu endilega hafa samband við okkur.
Við hvetjum þig til að hafa samband:


 

  • Ef þú finnur ekki lausnina sem þú leitar að á heimasíðunni okkar sendu okkur þá endilega mynd eða skissu af glugganum eða hurðinni sem þú vilt – við svörum þér með tilboði sem er án allra skuldbindinga.

 

Skanva rekur eigin verksmiðju

Skanva Group, rekur sína eigin verksmiðju sem framleiðir glugga og hurðir. Það þýðir að við erum alltaf í nánum samskiptum og notum ekki dýra milliliði við framleiðslu og afhendingu á vörum okkar.


Verksmiðjan okkar, framleiðir skandinavíska glugga og hurðir úr tré, tré/áli og PVC. Vörurnar eru fáanlegar bæði í sígildum og nútímalegum stíl. Allar vörur okkar eru dönsk hönnun frá upphafi til enda og uppfylla íslenskar kröfur.

Greiðslumöguleikar

Við bjóðum upp á þrenns konar greiðslumöguleika, millifærslu, kreditkort eða netgíró. Þegar þú pantar glugga og hurðir hjá okkur er engin fyrirframgreiðsla þegar greitt er með kreditkorti. Þegar pöntunin er send frá verksmiðjunni, skuldfærist heildarupphæðin af kortinu. Við millifærslu er öll upphæðin greidd áður en pöntunin er send í framleiðslu. 

FjármögnunFjármögnun

CE-merking

Allar vörur frá Skanva eru CE-merktar. Það þýðir að gluggar og hurðir frá okkur uppfylla sameiginlega evrópska staðla sem gilda á markaðssvæðinu. 

Ertu tilbúin/n til að panta nýja glugga og/eða hurðir?